brottvísun hælisleitenda til Grikklands.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu. Það er rétt sem hv. þingmaður segir, það er munur á verndarmálum og Dyflinnarmálum eins og við köllum þau. Verndarmálin eru þau mál sem koma inn í okkar kerfi þar sem einstaklingar hafa hlotið vernd í einhverju öðru ríki nú þegar. Það er þó ekki þannig að þau mál séu afgreidd sjálfkrafa út af borðinu heldur er einstaklingsbundið mat á þeim málum líkt og öllum öðrum málum. Við höfum séð það, m.a. ef maður kynnir sér úrskurði kærunefndar útlendingamála, að fjölskyldur sem hafa fengið vernd í Grikklandi hafa þrátt fyrir það fengið efnismeðferð og síðan vernd hér á grunni þess einstaklingsbundna mats að fólk sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Við hættum árið 2010 að senda fólk á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar til Grikklands þar sem staða þess fólks er í raun engin. Það er sent þá í flóttamannabúðir og staða þess innan Grikklands er engin. Aftur á móti þegar fólk hefur fengið vernd, hefur stöðu flóttamanns, hefur það sambærileg lagaleg réttindi og þeir sem fá vernd í öðrum ríkjum, þ.e. það fær dvalarleyfi og á rétt á heilbrigðisþjónustu, á menntakerfinu, má vinna, hefur rétt á að ganga í skóla og fær sjálfkrafa aðgang að vinnumarkaðnum og getur eftir þrjú ár fengið grískan ríkisborgararétt. En við vitum að þrátt fyrir þetta er staðan í Grikklandi ekki góð. Þetta er metið hverju sinni, umsækjendur fá einstaklingsbundið mat eða efnismeðferð hér á landi og það hefur ekkert ríki í Evrópu hætt endursendingum á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem þegar hafa hlotið vernd í Grikklandi, ekki Norðurlöndin sem við höfum leitast til að vera samstiga við í framkvæmd okkar. Kærunefnd útlendingamála fer auðvitað yfir ákvörðun Útlendingastofnunar í heild, staðfestir niðurstöðuna á grundvelli þessa einstaklingsbundna mats og þar höfum við séð dæmi þar sem fólk fær vernd. Þannig að þetta er ekki sjálfkrafa eins og hv. þingmaður gefur kannski aðeins í skyn.
Við þurfum auðvitað að velta fyrir okkur: Hvað ræður (Forseti hringir.) kerfið okkar við? Í hvað erum við að forgangsraða? Við höfum verið að forgangsraða til þeirra sem þurfa á vernd að halda, hafa hana ekki annars staðar og eru í raunverulegri neyð.