brottvísun hælisleitenda til Grikklands.
Virðulegur forseti. Það er rangt hjá hv. þingmanni að hér séu allar dyr lokaðar og ekki sagt já við neinum nema í ýtrustu neyð. Það er bara rangt hjá hv. þingmanni og hann getur kynnt sér þær tölur sem eru hér fyrir opnum tjöldum. Kerfið okkar í dag kostar hátt í 4 milljarða og við erum að forgangsraða fyrir þá sem eru í raunverulegri neyð og þurfa á vernd að halda og gerum það mætavel. Yfir 500 manns fengu vernd hér í fyrra og það er mjög há tala miðað við þau lönd sem við skoðum í kringum okkur. (Gripið fram í.) En við viljum líka gera það vel sem við erum að gera og forgangsraða vel til þeirra sem raunverulega þurfa á vernd að halda. Svo má sú umræða alltaf vera uppi hvernig kerfið okkar eigi að vera en það verður að vera gagnsætt, það verður að gæta jafnræðis við afgreiðslu mála og tryggja að þeir sem eru í sömu aðstæðum fái sömu afgreiðslu. Það hafa um 35 einstaklingar verið sendir til Grikklands frá 2015 en ekki hundruð manna eins og kannski er ýjað að. Kærunefnd útlendingamála var komið á fót eftir athugasemdir frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Rauða krossinum m.a.
Ég sé að hv. þingmaður hefur engan áhuga á að hlusta á svörin eða ræða þessi mál af einhverri yfirvegun, enda rýkur hann hér á dyr.