150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

matvælaöryggi.

[14:12]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Forseti. Alvarlegir atburðir nýliðinna daga og vikna, með Covid-19 veirunni og ýmiss konar afleiðingum hennar, leiða fram þau sannindi að í nútímanum er enginn eyland, ekki einu sinni eylandið Ísland. Alþjóðasamfélagið er svo samantvinnað að atburðir í fjarlægum löndum hafa áhrif alls staðar. Smit virða engin landamæri, hvað þá efnahagslegar afleiðingar sem hafa áhrif þvert á öll landamæri. Það leiðir hugann að því hvort það er ekki ábyrgð og skylda hvers ríkis að huga að því að vera sjálfu sér nægt þegar kemur að framleiðslu, sérstaklega þegar kemur að matvælaframleiðslu.

Mig langar því að nýta tækifærið til að spyrja hæstv. ráðherra út í þau mál er varðar Ísland. Hvað líður vinnu við matvælastefnu sem boðuð hefur verið? Hverjir eru áherslupunktar í henni? Erum við að huga þar sérstaklega að fæðuöryggi, heilbrigðismálum og kannski ekki síst því að efla innlenda framleiðslu eins og mögulegt er? Við sjáum í hendi okkar vandann sem skapast ef mun alvarlegri atburðir gerast, eða sú alvarlega staða kemur upp, sem við vonum að gerist ekki, hvenær sem er í framtíðinni, að við þurfum af einhverjum ástæðum að vera sjálfum okkur næg með okkar framleiðslu.

Mig langar því að þýfga hæstv. ráðherra um það: Hvað líður þeirri vinnu?