matvælaöryggi.
Virðulegur forseti. Því er til að svara að ráðherranefnd er að störfum um matvælastefnu og sú vinna gengur eftir atvikum ágætlega. Við erum örlítið á eftir áætlun með skil. Að þessu verki kemur fjöldi aðila. Það er breiður hópur sem vinnur að mótun þessarar stefnu og ég vænti þess að hún líti dagsins ljós núna á vormánuðum. Áherslan þar lýtur að því að mæta þeim kröfum sem uppi eru um hreinleika matvæla, hvort heldur það er við framleiðsluna sjálfa, þar sem við erum að styðjast við hreint vatn, mengun er lítil og lítið af aðskotaefnum við framleiðsluna, en ekki síður það að við séum að gera þetta á þann veg að sjálfbært sé. Við munum sömuleiðis horfa til þess að geta mætt með ákveðnum hætti þeim síkvika veruleika sem íslenskir framleiðendur í landbúnaði eða aðrir þurfa að mæta, sem snýr að lífsstíl, smekk og viðhorfum sem taka miklu örari breytingum í dag en fyrir tiltölulega fáum árum. Allt þetta er undir og þetta kemur sömuleiðis inn í þann grunn sem ég er að horfa til varðandi það að móta nýja landbúnaðarstefnu fyrir Ísland, sem tekur að hluta til tillit til þeirra áherslna sem koma fram í matvælastefnunni.
Ég ætla koma í síðara andsvari nær því sem hv. þingmaður nefndi varðandi fæðuöryggi og hvernig við höldum utan um þá þætti.