matvælaöryggi.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra greinargóð svör. Þá langar mig kannski að fara enn ítarlegar í efni málsins og hvað við viljum í raun sjá að verði. Við samþykktum hér í fyrra, ef ég man rétt, aðgerðaáætlun í 17 liðum þar sem m.a. var horft til matvælaframleiðslu og ekki síst út frá heilbrigðissjónarmiðum. Við höfum stigið skref þar og erum komin fram úr mjög mörgum ef ekki öllum samanburðarlöndum okkar, þannig að stefna stjórnvalda hvað heilbrigða innlenda matvælaframleiðslu varðar er mjög skýr.
Mig langar að spyrja ráðherrann hvort hann sé sammála því þegar við horfum á það hvað alþjóðasamfélagið er allt samantvinnað, hvað geti í raun gerst ef það kemur af einhverjum ástæðum hik á flutninga til Íslands, að nauðsynlegt sé að Ísland geti með eigin matvælaframleiðslu orðið sjálfu sér nægt.