150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

matvælaöryggi.

[14:18]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Já, varðandi fæðuöryggi: Í nýlegum samningi sem ég hef gert við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri höfum við komið okkur saman um það verkefni að Landbúnaðarháskólinn leggi grunn að mati á því hvað þarf til svo að við getum staðið á eigin fótum í töluverðan tíma. Við verðum sömuleiðis að hafa það í huga, þegar við ræðum um eigin getu til framleiðslu á matvælum, að veruleikinn er þannig þegar við horfum á landbúnaðarvörur í tollskránni að stærri hluti er fluttur inn en framleiddur er hér á landi. Það er því langtímaverkefni ef menn ala með sér þann draum að við getum bara staðið ein og sér. Þá kemur líka að öðrum þáttum sem snúa að aðföngum við matvælaframleiðslu eins og t.d. bara olíu eða varahlutum, vélbúnaði o.s.frv. Það er að mörgu að hyggja í þessu.

Hv. þingmaður nefndi aðgerðaáætlun og ég vil bara ítreka það hér í þingsal að við skiluðum skýrslu (Forseti hringir.) um framgang hennar í byrjun nóvember. Vinnan gengur afar vel og er gríðarlega metnaðarfull og þar er tekið á mörgum þjóðþrifamálum sem lengi hafa setið á hakanum.