150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

svör við fyrirspurnum.

[14:20]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp til þess að vekja athygli á því að það eru fyrirspurnir sem liggja fyrir frá þinginu sem hefur ekki verið svarað og hefur heldur ekki verið beðið um frest vegna. Ég tek sem dæmi að 21. janúar lagði ég fram fyrirspurn til skriflegs svars til forsætisráðherra um skaðabótakröfur vegna úthlutunar á heimildum til veiða á makríl. Það er spurning í fimm liðum og ég hef ekki enn fengið nein svör við henni.

Ég er með yfirlit yfir fyrirspurnir, bara frá okkur þingmönnum í Viðreisn, og það er búið að svara nokkrum. Reyndar sé ég að það tók allt að 73 dögum að svara einni. Síðan eru hér enn nokkrar sem ráðherra hefur ekki svarað og það eru allt upp í 49 dagar sem hafa liðið, frá um 30 dögum upp í 49 daga. Ég hvet forseta til að brýna fyrir ráðherrum að svara því að ekki streyma málin frá ríkisstjórninni inn í þingið. Ég hefði haldið að það væri nægur tími fyrir ráðuneytin og ráðherra að svara þessum einföldu spurningum. Varðandi fyrirspurn mína um makrílinn og þau málaferli sem eru í gangi liggja þessar tölur fyrir, m.a. í málsskjölum, (Forseti hringir.) þannig að við ættum að geta fengið svörin greiðlega ef menn vilja.