150. löggjafarþing — 65. fundur, 3. mars 2020.
svör við fyrirspurnum.
Forseti hefur heyrt hvað hv. þingmaður hafði um þetta að segja og í sjálfu sér stendur ekki á því að Alþingi hefur áhuga á því að fyrirspurnum sé svarað greiðlega og leggur ríka áherslu á að takist ekki að gera það innan tilskilinna tímamarka sé sótt um frest. Reyndar verður að horfast í augu við þá þróun að nú er svo komið að sennilega er það orðinn minni hluti fyrirspurna til skriflegs svars sem nær til þingsins innan tilskilinna tímamarka.