150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

svör við fyrirspurnum.

[14:22]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég get ekki annað en komið upp undir þessum lið og bent á að 6. mars, eftir þrjá daga, verður mánuður liðinn frá því að ég lagði fram við fyrirspurn um sölu á fullnustueignum Íbúðalánasjóðs í sjöunda sinn á tveimur árum. Engin viðbrögð hafa enn birst. Ég veit að forseti hefur lagt mér lið og er þakklátur fyrir það. Ég veit að yfirlögfræðingur Alþingis hefur gefið álit á þessu máli og þess vegna er að mínu mati enn brýnna að svör fáist við fyrirspurn eins og þeirri sem ég nefndi. Ég tek undir með hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur að meðan ekki eru meiri athafnir í ráðuneytunum en virðist vera núna er gjörsamlega óþolandi að búa við það að eftirlitshlutverk þingmanna skuli vera niðurlægt með þessum hætti.

Ég hvet hæstv. forseta til að veita mér nú lið sem áður og fá svar við þeirri fyrirspurn sem ég nefndi.