150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

svör við fyrirspurnum.

[14:23]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti minnir á að þetta viðfangsefni er reglubundið á dagskrá á fundum forsætisnefndar og reglubundið á dagskrá á fundum forsætisráðherra með formönnum þingflokka og formönnum fastanefnda. Mikil viðleitni hefur verið í gangi til að bæta úr þessum hlutum. Þá má að lokum nefna að þetta er undir í nefnd um endurskoðun þingskapalaga, þar á meðal hvort þeir skilafrestir sem enn eru bundnir í þingsköpum, bæði hvað varðar svör við skriflegum fyrirspurnum og beiðnum um skýrslur, séu yfir höfuð raunhæfir eða hvort þá eigi að endurskoða í ljósi reynslunnar.

Allt þetta er nú undir og mun að lokum ráðast til lykta annars staðar en í þingsalnum.