svör við fyrirspurnum.
Virðulegur forseti. Ég vil gera sömu athugasemd og ég hlýt að hafa gert 2013 þegar ég var nýr á þingi, fyrir nokkrum árum, yfir viðbrögðunum við því þegar hér er kvartað undan löngum biðtíma eftir svörum við fyrirspurnum. Þá er ævinlega farið út í að tala um hvað fyrirspurnir séu margar og að kannski sé þessi frestur ekki alveg raunhæfur. Réttu svörin eru auðvitað að bæta þá innviði sem þarf til þess að þingmenn geti sinnt eftirlitshlutverki sínu og aðhaldshlutverki gagnvart ríkisstjórninni annars vegar og hins vegar að auka aðgengi upplýsinga, ekki bara til almennings heldur einnig að búa þannig um þær að þær séu aðgengilegri þeim ágætu embættismönnum sem síðan þurfa að takast á við fyrirspurnirnar og svara þeim.
Það er hægt að gera betur á báða vegu, m.a. þann veg að bæta innviðina hjá ráðuneytunum vegna þess að ein af grundvallarstarfsskyldum okkar er að veita aðhald og hafa eftirlit með ríkisstjórninni. Virðing fyrir því eftirliti þarf að vera (Forseti hringir.) til staðar og hún þarf að endurspeglast í vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar sjálfrar.