150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

svör við fyrirspurnum.

[14:29]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Það hefur oft verið rætt hérna áður en mig langaði að vekja athygli á því, af því að ég er ekki ábyrgur fyrir stíflunni í þetta skiptið með 12 fyrirspurnir, að fyrir liggur fyrirspurn til ráðherra um lögbundin verkefni og kostnað þeirra. Það virðist valda einhverri stíflu í þinginu eða verið að segja að hún sé of yfirgripsmikil en mér finnst mjög auðvelt að spyrja bara hver séu lögbundin verkefni stofnana og ráðuneyta og hvað þau kosta. Ég myndi halda að það væri ekki of yfirgripsmikið.

Annað sem mig langar til að vekja athygli á er að almennt séð er vandamál með svarfrestinn alls ekki það að hann sé of stuttur. Það er hægt að vinna í hina áttina. Það koma ekki það mörg svör frá hverju ráðuneyti á viku, ekkert svo rosalega mikið að gera í því. Á sama tíma sjáum við skýrslubeiðni sem var samþykkt á Alþingi fyrir tveimur árum en skýrslan er ekki komin enn, um stjórnsýsluna í rannsóknarskýrslum Alþingis. Það eru komin tvö ár, þar er búið að teygja lopann ansi lengi.