svör við fyrirspurnum.
Hv. þingmaður sagði að forseti reri í gagnstæða átt því sem forsætisráðherra beitti sér fyrir, þ.e. að auka gagnsæi í störfum þingsins, og því hafnar forseti. Forseti rær í enga slíka átt. Forseti telur sig hafa staðið alveg bærilega með rétti þingmanna til að fá svör við fyrirspurnum sínum. Er þar frægust deila hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar við tvo ráðherra sem leiddi til mikilla lögfræðilegra álitsgerða sem forsætisnefnd gerði að lokum að sínum og studdi forseti hv. þingmann í því að fá svör við þeim fyrirspurnum. Þar var um grundvallarspurningar að ræða sem var mjög mikilvægt að fengjust svör við og nú liggur fyrir afdráttarlaus niðurstaða í því að ráðherrar geta ekki borið fyrir sig persónuverndarsjónarmið í tilvikum af því tagi heldur ber að svara fyrirspurnum skýrt og skilmerkilega.
Jafnframt liggur fyrir grundvallarniðurstaða í því að Alþingi ritskoðar ekki svör frá ráðuneytum. Svörin verða að vera endanleg og í samræmi við það lagaákvæði og þá lagaskyldu að þau eru umsvifalaust birt eftir að ráðuneytin svara. Tveimur mikilvægum atriðum hefur verið rutt úr vegi að þessu leyti á undanförnu ári en það hefur kostað mikla vinnu og heilmikil samskipti við Stjórnarráðið.
Annars er tilfinning forseta sú að betra sé að við ræðum þetta mál á viðeigandi vettvangi, í forsætisnefnd og á fundum með formönnum þingflokka.