150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

svör við fyrirspurnum.

[14:36]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Stundum finnst mér herra forseti telja sig misskildasta manninn í húsinu. Ég skildi orð hv. þm. Jóns Þórs Ólafssonar þannig að herra forseti væri að ræða þann möguleika að lengja frestina til að koma til móts við kannski raunverulega stöðu þannig að mér fannst ekkert óeðlilegt við þau orð. Fyrst ég er kominn hingað upp verð ég bara að fá að segja að mér finnst nefnilega herra forseti oft draga taum ríkisstjórnarinnar frekar en þingsins (Forseti hringir.) og á sínum verstu dögum jafnvel vera eins og blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar. (Forseti hringir.)