150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

svör við fyrirspurnum.

[14:37]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Nú bættist við þriðja atriðið sem ég ætlaði að koma inn á á þessari einu mínútu. Sennilega kem ég því ekki að.

Ég get tekið undir það með hæstv. forseta að forseti stóð sig ágætlega í forsætisnefnd í málinu hvað varðar persónuverndarsjónarmiðin í fyrirspurn hv. þingmanns sem forseti fór yfir áðan. Það var hins vegar ekki gagnrýnin sem kom frá þingmönnum, hún snerist um tímafresti og viðbrögð forseta sem eru þau að tímafrestir séu hugsanlega ekki raunhæfir. Hv. þingmenn vilja væntanlega heyra að eitthvað verði gert til að ráðuneytin standi sig betur í því að svara betur og fyrr. Það er rétta svarið frá sjónarhorni þingmanna sem eru að beita aðhaldshlutverki sínu.

Ég er ekki að reyna að vera dónalegur en höfum eitt á hreinu, þingmenn sem tala í pontu gagnrýna bara forseta sinn ef þeim sýnist. Þannig er það, virðulegur forseti, og ég gef engan afslátt af því.