150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

svör við fyrirspurnum.

[14:38]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Mig langar til að bregðast við orðum virðulegs forseta áðan vegna þeirra undanbragða sem hafa verið hérna að undanförnu. Frá mínum bæjardyrum séð er skemmst að minnast þess að það tók heilt ár að fá upplýsingar um akstursgreiðslur þingmanna. Það kostaði síendurteknar fyrirspurnir til að komast hjá undanbrögðum í svörum í staðinn fyrir að svara bara beint út. Að lokum var einfaldlega búið að mála forseta út í horn með það að svara.

Í öðru lagi voru siðareglumál hérna sem varða sannleiksgildi. Hvers konar undanbrögð eru það, virðulegi forseti?