svör við fyrirspurnum.
Forseti. Ég verð að viðurkenna að það sauð dálítið á mér þegar forseti svaraði hv. þm. Loga Einarssyni áðan. Mér finnst ekki í lagi að upplifa það sem þingmaður að ég geti ekki komið í pontu og gagnrýnt forseta án þess að hafa áhyggjur af eða hreinlega vera hrædd við reiðiköstin í hæstv. forseta sem ég hef því miður lent í áður. Þetta er dálítið upplifun mín hér og nú og mér finnst viðbrögðin ekki í lagi. Við verðum að fá að koma upp og gagnrýna forseta og fá að tala á þann máta sem við teljum skyldu okkar án þess að þurfa að vera hrædd við litla einræðisherrann sem forseti hefur innan í sér.