svör við fyrirspurnum.
Virðulegi forseti. Við áttum í upphafi þingfundar ágætisorðastað við hæstv. forsætisráðherra sem kom hingað og miðlaði upplýsingum. Hún svaraði spurningum og miðlaði upplýsingum. Mér finnst það mikilvægt. Í því felst m.a. aðhaldið frá stjórnarandstöðu. Það er enn skemmtilegra ef það er ákveðið samtal sem fer af stað þar sem upplýsingum er miðlað og menn verða ekki foj yfir því að í spurningu felist gagnrýni. Kannski á gagnrýni sér einhverja stoð og kannski ekki.
Við erum komin hingað upp til að sýna fram á það að trekk í trekk líða margir dagar, allt upp í 79, þar til að framkvæmdarvaldið svarar fyrirspurnum á þingi. Svo á að fara að draga tennurnar úr okkur í stjórnarandstöðunni með að koma með yfirlýsingar um að hugsanlega eigi að lengja frestinn þegar ekkert kemur frá ríkisstjórninni. Viku eftir viku fyllum við þokkalega upp í dagskrána á þinginu (Forseti hringir.) með þingmannafrumvarpi eftir þingmannafrumvarp. Svo kemur forseti og setur ofan í við hv. þm. Loga Einarsson fyrir það eitt að lýsa sjálfsagðri skoðun sinni á því hvernig forseti hagar störfum sínum og fundarstjórn. (Gripið fram í: Já.) Það er bara til skammar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)