svör við fyrirspurnum.
Herra forseti. Ég tek undir með þeim þingmönnum sem hafa hvatt til þess að skilum á svörum við fyrirspurnum verði flýtt og skilvirkni aukin. Hlutverk okkar til eftirlits með framkvæmdarvaldinu er t.d. það að koma með fyrirspurnir og óska eftir skýrslum. Lögin eru skýr, talað er um 15 virka daga, þ.e. tvær vikur, sem ráðherra hefur til að svara en því virðist sjaldan vera framfylgt. Ég er með eina fyrirspurn sem er töluvert eldri en 79 daga. Hún er síðan í byrjun nóvember í fyrra og hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ekki enn svarað. Það úrræði sem þingmenn hafa til að fá svör hjá ráðherrum við hinum ýmsum málum verður auðvitað að vera virkt og ég hvet forseta til að vinna í því með okkur að láta framkvæmdarvaldið ekki komast undan þessari sjálfsögðu skyldu sinni.