svör við fyrirspurnum.
Það er nákvæmlega það sem forseti telur sig hafa verið að gera og nákvæmlega það sem er á dagskrá og er til umræðu í nefnd um endurskoðun þingskapa. Það heppnaðist ekki vel að vitna til þeirra umræðna sem þar hafa verið ágreiningslausar. Þar hafa menn rætt um það hvernig megi tryggja meiri skilvirkni í þessum efnum. Eitt af því sem vissulega hefur borið þar á góma er hvort þessir frestir séu óraunhæfir eða hvort þeir eigi að vera öðruvísi útfærðir þannig að þeir séu almennt þeir sem tilgreindir eru í dag en að hægt sé að gera ráð fyrir lengri tíma ef fyrirspurnir eða skýrslubeiðnir eru mjög viðamiklar. Það heyrir til algjörra undantekninga að skýrslum sé skilað innan þess frests sem gert er ráð fyrir í þingsköpum. Ef menn vilja hafa það þannig áfram er það allt í góðu lagi.
Svo ætlar forseti að segja að ef einhver þingmaður hefði talað um forseta Íslands eins og hv. þm. Logi Einarsson talaði um forseta sinn áðan hefði sá þingmaður verið víttur. Í 94. gr. þingskapa er talað um hvað gerist ef þingmaður talar óvirðulega um forseta Íslands o.s.frv., en forseti ætlar að láta þingmönnum sjálfum það eftir hvernig þeir kjósa að tala um sinn forseta, þ.e. forseta Alþingis, og er seinþreyttur til vandræða í þeim efnum.