svör við fyrirspurnum.
(Forseti (SJS): Hv. þm. Logi Einarsson kann að hafa talað tvisvar um fundarstjórn forseta nú þegar en fær einu sinni enn orðið með leyfi forseta því að honum liggur mikið á hjarta.)
Herra forseti. Mér liggur kannski ekki jafn mikið og hjarta og herra forseta en ég tel að ég hafi á engan hátt vegið að æru forseta. Það eina sem ég geri er að lýsa upplifun minni. Ef þess er óskað get ég dregið fram nokkur myndbrot til stuðnings því sem ég er að tala um.
Ég virði auðvitað vald forseta og rétt hans til að tjá sig en ég stend við fyrri orð.