150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

svör við fyrirspurnum.

[14:46]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Ég ber virðingu fyrir valdi forseta. Ég ber líka mikla virðingu fyrir þeim skyldum þingmanns að veita aðhald og mér þykir afar mikilvægt að í þessum ræðustóli sé hægt að gagnrýna forseta. Auðvitað bera viðkomandi aðilar ábyrgð á orðum sínum, það hefur alla tíð verið svo, en af því að ég hef til þess tíma langar mig líka að nefna að hér held ég að hafi gerst nokkuð sem ekki gerist svo oft, að forseti veitir þingmanni undanþágu til að koma í þriðja skipti í ræðu um fundarstjórn forseta vegna þess að forseti metur það að þingmanninum sé mikið niðri fyrir, hafi ég tekið rétt eftir. Hvernig ætlar forseti að fara að því í framtíðinni að meta hversu mikið okkur er niðri fyrir? Fer það eftir því hvað ég tala hátt eða hvað ég nota stór og gildishlaðin orð? (Gripið fram í.) Mér er mikið niðri fyrir í mörgum málum, herra forseti.