150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

svör við fyrirspurnum.

[14:48]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti telur að það skýri sig sjálft af hverju hann gaf hv. 5. þm. Norðaust. orðið við þessar aðstæður. Það var vegna þess að orðaskiptin sem að baki lágu voru milli hv. þingmanns og forseta. Forseti hefur að sjálfsögðu heimild til að rýmka reglur þingskapa ef honum sýnist það nauðsynlegt vegna eðlilegra skoðanaskipta, samanber heimildir þar um í þingsköpum.