150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

svör við fyrirspurnum.

[14:50]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Forseti. Ég vil byrja á að minna hv. þm. Kolbein Óttarsson Proppé á að það var hann sem tók síðustu fyrirspurnina í þessum lengda fyrirspurnatíma. Það hefur reyndar borið svo við að oftast eru það stjórnarliðar sem fá þessa aukafyrirspurn sem forseti kom á. Bara til að halda því til haga fengum við ekki sérstaklega mikið aukið svigrúm við þessa lengingu á fyrirspurnatímanum. Það kemur fyrir af og til.

Við erum hér til að ræða það að ríkisstjórnin er allt of sein að svara spurningum okkar og kjarninn í því er að nú á bara að lengja þann tíma sem ríkisstjórnin fær til að svara spurningum. Fyrir það er hæstv. forseti gagnrýndur, að það sé stefnan frekar en að leggja harðar að ríkisstjórninni að svara á réttum tíma. Mér þykir alveg eðlilegt að gagnrýna hæstv. forseta fyrir þá nálgun og mér þykja viðbrögð hæstv. forseta við gagnrýni Loga Einarssonar einkennast af æsingi fremur en málefnalegum rökum.