svör við fyrirspurnum.
Virðulegur forseti. Til umræðu var einnig þingskapanefnd hæstv. forseta ásamt fulltrúum. Ég sat kannski fyrsta fundinn þar sem breyting á þingsköpum og starfsháttum þingsins var til umræðu. Þar var rætt hvaða markmið við hefðum með þessu starfi, hvert við vildum fara með það. Það var að styrkja stjórnarandstöðuna, gera Alþingi að fjölskylduvænni og kannski bara mannvænni vinnustað, efla þingstörfin og nefndastörfin. Þannig skildi ég hvað við vorum að leggja upp með en það eina sem ég hef heyrt koma út úr þessari nefnd hingað til er að lengja þann tíma sem ríkisstjórnin hefur til að svara, stytta þann tíma sem forseti þarf að standa og lesa upp frestunarbréf frá ríkisstjórninni og standa í einhvers konar þingskapalegu snitti til að auðvelda forsetastörfin í þingsal.
Ég upplifi ekki að það sé stefnt að þessum upphaflegu markmiðum og mér þykir það miður, herra forseti.