150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

svör við fyrirspurnum.

[14:54]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Ég ætlaði að leiða þessa umræðu hjá mér í dag af því að mér fannst þetta komið út í talsvert mikla vitleysu hjá einstökum þingmönnum en ég verð þó að geta þess, vegna þess að mér fannst síðasta ræða, ræða hv. þm. Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, eiginlega algjörlega út í hött og algjörlega í ósamræmi við umræður sem átt hafa sér stað á vettvangi þingskapanefndar að mér finnst ástæðulaust að umræðan renni sitt skeið á enda í dag án þess að því sjónarmiði sé haldið fram. Ég veit ekki að hve miklu leyti hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hefur fylgst með umræðum í þingskapanefnd en það sem hún heldur fram varðandi áherslur og starf í þeirri nefnd eða hvers vænta má af störfum hennar er út í bláinn.

Varðandi stöðu forseta held ég að þó að þingmenn hafi vissulega fullan rétt á að gagnrýna forseta á málefnalegum forsendum er engu að síður rétt að menn hafi í huga að hlutverk forseta (Forseti hringir.) er að stýra störfum þingsins. Hlutverk forseta er að stýra fundum þingsins og gæta þess að þingmenn fari ekki út fyrir t.d. tímamörk sem er oft. [Hlátur í þingsal.]

(Forseti (SJS): Forseti gleymir sér stundum gagnvart tímamörkunum.)