svör við fyrirspurnum.
Forseti hefur ekki tekið eftir að fleiri vilji ræða fundarstjórn forseta enda mjög stór hluti þingsalarins búinn að gera það tvisvar. Forseti vill segja að vitaskuld hafa hv. þingmenn fullan rétt á því að gagnrýna forseta sinn. Að sjálfsögðu geta þingmenn, hvar í flokki sem þeir standa, hvort sem þeir eru úr meiri hluta eða minni hluta, verið ósáttir við eitthvað í framgöngu forseta síns. Þeir hafa þá fullan rétt til þess að láta það í ljósi en það fer vel á því að það sé gert rökstutt og með hófsamlegum hætti.
Forseti bakkar ekki með það að það að kalla forseta Alþingis blaðafulltrúa ríkisstjórnar eða lítinn einræðisherra er að tala af óvirðingu um forseta Alþingis. Þeir þingmenn sem vilja láta það standa geri það en forseti endurtekur að svona mun hann ekki líða neinum einasta þingmanni, svo dæmi sé tekið, að tala um forseta Íslands.
Lýkur nú þessari umræðu.