150. löggjafarþing — 70. fundur,  5. mars 2020.

skýrsla um bráðamóttöku Landspítalans.

[10:55]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Eins og fram kemur í máli hans voru tveir sænskir sérfræðingar sem hafa verið að fjalla um sambærileg viðfangsefni í Svíþjóð fengnir hingað til að beita sinni reynslu og sínu innsæi og þekkingu á þá stöðu sem upp var komin á Landspítala. Sú skýrsla var lögð fram sem gagn fyrir átakshópinn og svo til mín sérstaklega til að skerpa sýnina á hvað væri til umfjöllunar. Og eins og hv. þingmaður nefnir þá er skýrsla Svíanna lögð fram sem viðauki við skýrslu átakshópsins ásamt fleiri skjölum.

Það sem kemur fram í ábendingum sænsku sérfræðinganna að hluta lýtur að sambærilegum og samhljóða ábendingum sem komu frá embætti landlæknis fyrir ári. Embætti landlæknis hefur bent á að skort hafi á það að Landspítali hafi brugðist við tilteknum ábendingum í þeim efnum fyrir ári og m.a. var það þess vegna sem embætti landlæknis lagði til að átakshópurinn yrði settur á laggirnar þar sem aðkoma ráðuneytisins væri sett í gang. Þannig að mín viðbrögð við skýrslu Svíanna eru fyrst og fremst þau sem hér hafa verið rakin, mér fannst mikilvægt að hún væri lögð inn sem gagn í vinnunni, enda eru tillögur sem koma fram hjá Svíunum sem lifa síðan áfram, ef svo má segja, í skýrslu átakshópsins.

Varðandi spurningu hv. þingmanns um stjórn yfir Landspítala hefur ekki komið fram að mínu viti hvers konar stjórn er verið að tala um eða hvernig hún ætti að vera samsett. Ég hef sagt að ég sé reiðubúin að skoða þessa hugmynd þó að ég hafi áður lýst því að ég sjái ekki í fljótu bragði nákvæmlega hver ávinningurinn yrði. (Forseti hringir.) Ég er ekki enn þá sannfærð um að við séum reiðubúin í þá vegferð sem mun krefjast lagabreytingar en ég er tilbúin að hlusta á rök með og á móti.