150. löggjafarþing — 70. fundur,  5. mars 2020.

samræmd viðbrögð ríkja við fólksflutningum.

[11:00]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Nýlega tókum við þátt í því sem heitir Samþykkt um örugga, skipulagða og reglubundna fólksflutninga eða á ensku „The Global Compact for Safe, Orderly and Regular Migration“. Markmiðið þar er m.a. að skapa samvinnugrundvöll meðal ríkja heimsins um skipulögð og samhæfð viðbrögð við fólksflutningum, gera þá skipulega, hafa þá ekki óskipulega, og haga lagaverki og viðbrögðum alþjóðasamfélagsins á þann veg að sem best gangi að eiga við bæði fólksflutninga sjálfa og óhjákvæmilegar afleiðingar þeirra.

Nú er staðan milli Grikklands og Tyrklands orðin enn alvarlegri en hún var áður og hefur lengi verið alvarleg. Hún er sú að Tyrkland ætlar að hætta að stöðva flóttamenn, sem hafa verið þar í gríðarlegum mæli, í því að fara yfir til Grikklands. Grikkland mun vitaskuld og er að hindra för þessa fólks. Óhjákvæmilega leiðir þetta af sér enn þá meira álag á Grikkland, þ.e. ytri landamæri Evrópusambandsins. Það þýðir að vandinn mun aukast sem fylgir þessu. Ég gæti haldið ræðu um það, ef ég hefði lengri tíma, hversu mikla ábyrgð báknið sem við höfum byggt ber á því að hindra för fólks almennt, en mér hefur sýnst vandinn vera sá að Evrópuríki hugsa hlutina almennt út frá eigin samhengi en ekki samhengi Evrópu í heild sinni, þ.e. að Evrópa geti sameiginlega átt við þrýsting og álag sem verður óhjákvæmilega af þessum miklu fólksflutningum.

Því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort Ísland sé að nýta þennan samvinnugrundvöll og á einhvern hátt að taka þátt í samhæfðum viðbrögðum til að bregðast við því ástandi sem er fyrirséð að verði enn verra. Sér í lagi hef ég áhuga á að vita hvort samtöl eigi sér stað milli utanríkisráðherra eða utanríkisþjónustu Evrópusambandsríkjanna um að dreifa álagi um álfuna frekar en að láta það allt lenda á löndum eins og Grikklandi og Ítalíu.