íslensk landshöfuðlén.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér hið áhugaverðasta mál frá hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um íslensk landshöfuðlén. Nú er árið 2020 og umræða um þetta efni hefur verið í gangi af og til meðal þeirra sem ég ætla að kalla tölvunörda í alllangan tíma. Þannig er mál með vexti að til er ágætt fyrirtæki sem heitir ISNIC og sér um skráningu lénsins .is á Íslandi. Þetta er fyrirtæki eins og hvert annað og ríkið á einhvern hlut í því. Mér skilst að sagan sé sú að forðum daga hafi það verið hluti af hinu opinbera en skráningarrétturinn hafi slæðst með í einhvers konar einkavæðingu.
Margt ágætt má segja um þetta frumvarp. Ég verð að segja að þetta hefur verið svolítið umdeilt í gegnum tíðina meðal þeirra sem þekkja til tæknimálanna. Á annan bóginn finnst mörgum, þar á meðal þeim sem hér stendur, ekkert endilega eðlilegt að einkafyrirtæki fari með þessa skráningu á .is-lénum, sér í lagi vegna þess að enginn annar getur gert það á þeim tíma. Almennt er ég þeirrar skoðunar að einkaframtakið eigi heima þar sem samkeppni er möguleg og ekki þar sem hún er ekki möguleg með einhverjum undantekningum. Á bak við það eru engin trúarbrögð, heldur bara það einfalda sjónarmið að þegar samkeppnin er engin virka hin kapítalísku áhrif ekki jafn vel og þau þurfa að gera til þess að ég hafi mikla trú á markaðshugsjóninni. Markaðshugsjónin gengur út frá ákveðnum hlutum og meðal þeirra er samkeppni sem er augljóslega ekki möguleg ef einn aðili á markaðnum hefur alvald yfir honum.
Það er ekki þar með sagt að hvaða lög sem er séu gáfuleg eða skynsamleg. Það var umræða um að setja svona lög fyrir einhverjum árum af þáverandi hæstv. innanríkisráðherra, Ögmundi Jónassyni. Ég man eftir því frumvarpi, mér leist ekkert á það þá og spurði mig hvaða vandamál fólk væri að reyna að leysa. Það var auðvitað að reyna að leysa aðeins fleiri vandamál en þau sem voru til staðar. Ástæðurnar sem eru til grundvallar þessu frumvarpi eru útlistaðar í greinargerð frumvarpsins og vega í stuttu máli að öryggisógn, þ.e. að það sé mögulegt fyrir ríkið að bregðast við, t.d. ef hryðjuverkaáróðri er dreift eða til að loka vegum sem kannski þarf að gera af einhverjum þjóðaröryggisástæðum. Þetta frumvarp er þó að langmestu leyti mun mildara en það sem var stungið upp á á sínum tíma, enda var þá farið svolítið geyst að mínu mati í því að reyna að hafa stjórn á öllu. Það er oft tilfellið þegar yfirvöld vilja fara að stjórna einhverju sem hefur verið í höndum einkaaðila þangað til vegna þess að háttsemin er ný, inngripið er nýtt í sögulegu samhengi, og þá er tilhneiging til að vilja stjórna aðeins meiru en kannski er þörf á bara til öryggis, bara ef ske kynni að einhvern tímann myndu yfirvöld vilja banna eitt eða hirða annað.
Ég sé ekki mikið að í þessu frumvarpi en verð þó að fjalla aðeins um eitt sem snertir almenn hegningarlög og ákveðið stjórnlyndi sem mér finnst einkenna íslenska löggjöf almennt. Það er 11. gr. sem fjallar um lokun og haldlagningu skráðra léna. Það ákvæði felur í sér að lögregla geti krafist þess, að undangengnum dómsúrskurði, að skráningarstofa, eins og ISNIC, loki léni sem skráð er undir íslensku landshöfuðléni í eftirfarandi tilvikum, eins og þar stendur, og svo eru nefndir tveir stafliðir. Það er b-liðurinn sem mig langar til að fjalla um. Ég skal samt nefna a-liðinn til að hafa þetta allt með. Í honum segir orðrétt: „ef rétthafi léns, umboðsmaður hans eða þjónustuaðili hefur náin tengsl við skipulagða brotastarfsemi eða nýtir lénið í þágu þeirrar starfsemi eins og sú starfsemi er skilgreind í almennum hegningarlögum“. Allt í lagi, ég hef svo sem ekkert við það að athuga, en síðan kemur b-liðurinn. Ég veit ekki hvað það er með að setja vonda hluti í b-lið þessa dagana en í b-liðnum í þessu frumvarpi segir, með leyfi forseta:
„ef lén er notað til að miðla ólöglegu efni eða efni sem hvetur til refsiverðrar háttsemi sem varðar við almenn hegningarlög og meint brot getur varðað fangelsisrefsingu allt að tveimur árum eða meira.“
Ég set spurningarmerki við báða hluta þessa ákvæðis. Fyrri hluturinn er hugtakið „ólöglegt efni“. Nú er ýmislegt ólöglegt á Íslandi sem er ekki ólöglegt annars staðar, a.m.k. ekki í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Þar höfum við frjálslynd lýðræðisríki. Eitt af því sem er bannað á Íslandi en er ekki bannað í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Frakklandi, á Ítalíu, í Þýskalandi og ekki einu sinni í Bretlandi er klám. Af einhverjum ástæðum sem ég ætla aðeins út í er klám enn þá bannað á Íslandi. Það er tabúumræðuefni, ég hef nokkrum sinnum farið yfir þetta í ræðum á þinginu, tabúumræðuefni sem fólki finnst óþægilegt að tala um og vill helst ekki úttala sig um, væntanlega vegna þess að kynlíf og kynhegðun er afskaplega persónulegt efni sem allir hljóta að hafa einhvers konar kenndir við sem þeir kunna ekki við að tala um of opinskátt. Ég skil það mætavel, enda nákvæmlega eins í mínu eigin tilfelli, en við erum fullorðið fólk og erum á Alþingi og við þurfum að geta talað mjög opinskátt um það sem við erum búin að ákveða á hinu háa Alþingi að við ætlum að banna, sér í lagi þegar það bann vegur að tjáningarfrelsinu. Áður en einhver segir að klám komi tjáningarfrelsi ekkert við segi ég bara: Bull, það kemur því víst við. Það er fráleitt að segja annað. Ef það er bannað að birta eitthvert efni varðar það tjáningarfrelsið. Jafnvel þótt maður segi að það séu lögmætar hömlur á tjáningarfrelsinu varðar það tjáningarfrelsið og þarf að fjalla um það í því samhengi. Það er óhjákvæmilegt.
Ég ætla að fullyrða að þjóðríki sem er enn þá með klám bannað er ekki vaxið úr grasi þegar kemur að tjáningarfrelsi. Það er ekki orðið fullorðið þegar kemur að tjáningarfrelsi. Ástæðuna fyrir því að við erum enn þá með þetta bannað hér tel ég vera þá að við erum afskaplega smátt þjóðríki og eftir því sem við best vitum er enginn klámbransi hér. Það er ekki margt fólk sem er að búa til klámefni á Íslandi — að því er við vitum. Ég segi það með þeim fyrirvara að það getur vel verið að fullt sé í gangi án þess að við vitum af því. En a.m.k. er enginn þrýstingur á því, það er enginn Larry Flynt hérna að reyna að storka lögunum, búa til klám, láta handtaka sig, fara fyrir dómstóla, gera farsa úr öllu málinu sem óhjákvæmilega verður og þar af leiðandi að sýna fólki fram á hversu fráleitt það er að ætla að fara að beita lögum gegn klámi. Þannig verður aldrei þessi þrýstingur til og þar af leiðandi heimilum við aldrei klám hér, afnemum aldrei þetta fáránlega bann.
Þetta er samt sem áður ákveðið grundvallaratriði, ekki vegna þess að klám sé mikilvægt í sjálfu sér. Það er ekkert mikilvægt að það sé heimilt að birta eða dreifa klámi á Íslandi í sjálfu sér, enda nóg af því að finna á internetinu eins og allir vita sem vilja — og fleiri vita en vilja. Þetta hefur hins vegar áhrif þegar kemur að löggjöf eins og þessari. Þetta hefur áhrif þegar kemur að löggjöf eins og heimildum lögreglu til að hlera. Það slysaðist næstum því inn en gerðist ekki, þökk sé Pírötum, að lögreglan gæti hlerað einhvern á grundvelli 210. gr. almennra hegningarlaga sem er bannið við klámi. Það er hættulegt, virðulegi forseti, vegna þess að þegar einn horfir á klám á netinu er annar að dreifa því. Þetta hefði getað verið stórslys vegna þess að hvort sem okkur líkar betur eða verr og hvort sem við viljum það eða ekki horfir fólk á klám, lifandis hellingur af fólki horfir á klám. Þannig er það og við getum ekki leyft okkur hér að setja lög sem setja réttaröryggi þess fólks í uppnám. Það megum við ekki gera en við vorum næstum búin að því.
Nú skortir mig ræðutímann, ég vildi tala um eitthvað fleira en klám í þessari ræðu og læt þetta duga hér um það. Þó vil ég geta þess að hér er ég bara að tala um að miðla ólöglegu efni. Klámbannið varðar einungis sex mánaða fangelsi, mjög fyndið að segja það upphátt, virðulegi forseti.
Yfir í hitt sem er efni sem hvetur til refsiverðrar háttsemi sem varðar við almenn hegningarlög og meint brot getur varðað fangelsisrefsingu allt að tveimur árum eða meira. Gott og vel, það getur verið skynsamlegt að hafa inni einhverja svona klausu. Hins vegar legg ég til að það sé allt of lágt viðmið að miða við meint brot sem getur varðað fangelsisrefsingu allt að tveimur árum eða meira vegna þess að ýmislegt er í almennum hegningarlögum sem fólk þarf að mínu mati að geta tjáð og þarf að geta hvatt annað fólk til að geta tjáð sem brýtur í bága við almenn hegningarlög af sömu ástæðu og ég nefndi áðan, að Ísland er ekki búið að fullorðnast þegar kemur að tjáningarfrelsinu.
Reyndar má aðeins flækja þá lýsingu þegar kemur að því næsta sem ég vil tala um sem er 95. gr. almennra hegningarlaga. Hún felur í sér að hver sem opinberlega smánar erlenda þjóð eða erlent ríki, æðsta ráðamann, þjóðhöfðingja þess, fána þess eða annað viðurkennt þjóðarmerki, fána Sameinuðu þjóðanna eða fána Evrópuráðs, skuli sæta sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Ef sakir eru miklar varðar brot fangelsi allt að sex árum.
Ég hef tekið nokkra tangóa við þetta ákvæði í nefnd og í ýmissi umræðu. Það hefur komið í ljós að eitthvert svona ákvæði þarf víst að vera til staðar til að uppfylla alþjóðasamninga. Gott og vel, en nú erum við t.d. svo óheppin að valdamesti maður jarðarinnar, Donald Trump, er forseti Bandaríkjanna sem er skelfilegt. Í þeim farsa sem forsetatíð hans hefur verið hefur oft verið mjög mikilvægt, ekki bara að það ætti að vera heimilt heldur mjög mikilvægt, að smána hans gjörðir og þann mann. Það er mjög mikilvægt þegar aðrir eins hrottar komast til valda að það sé sagt opinskátt og hreint út. Ég fæ ekki betur séð en að það sé í mótsögn við þetta lagaákvæði. Ég hef brotið þessi lög. Ég gerði það viljandi og ég setti það á Twitter, ekki einu sinni í þessari pontu, og hvet aðra hér með til að gera hið sama, að móðga þann erlenda þjóðhöfðingja. Það er mjög mikilvægt.
Grundvallaratriði tjáningarfrelsisins er að geta móðgað, smánað og gert lítið úr og gert gys að með vondum hætti sem særir þjóðhöfðingja og yfirvöld alls staðar og alltaf. Það er mín afstaða og heyrist hún hér og víðar. Jafnvel þótt við vildum ekki ganga svo langt, jafnvel þótt við værum með einhvern mátulega siðmenntaðan forseta Bandaríkjanna má samt sem áður ekki setja fólk í þá stöðu að það þurfi að fara að passa sig ægilega mikið á því hvað það segir um yfirvöld almennt af ótta við að léninu þess verði lokað. Ég vil ekki hafa það þannig. Hér er fangelsisramminn tvö ár.
Ég hef lítinn tíma eftir þannig að ég ætla að vinda mér í það síðasta sem ég vil nefna í þessu sambandi, en það er 233. gr. a almennra hegningarlaga sem fjallar um hatursáróður. Ég er sjálfur hlynntur því að í lögum sé eitthvert ákvæði um hatursáróður, en það skiptir máli hvernig það er útfært og það skiptir máli hvað stendur í ákvæðinu. Ákvæðið eins og það er í dag hefur reynst mjög illa samkvæmt því sem ég les úr dómum Hæstaréttar. Fyrir einhverjum árum fóru þrenn ummæli til Hæstaréttar til mats á því hvort þau væru brot á þessum lögum. Mig minnir að fyrir ein þeirra hafi verið sakfellt en hin tvenn sýknuð eða öfugt. Ef maður les ummælin í handahófskenndri röð fullyrði ég að það sé algjörlega ómögulegt fyrir hinn almenna borgara að átta á því hvaða ummæli hafi verið brotleg við greinina og hvaða ummæli ekki. Það er hættan við svona klausur þegar þær eru ekki nógu skýrar og þegar þær grundvallast ekki á einhverjum ógurlega mikilvægum prinsippum. Það að banna fólki að hóta eða stofna öryggi annarra í hættu er eðlilegt vegna þess að fólk hefur rétt á að vera öruggt. Það á rétt á réttindum, það á rétt á jafnrétti, það á rétt á friðhelgi einkalífs, sanngjörnum réttarhöldum og fleira í þeim dúr. Það hefur eignarrétt og ýmis réttindi. Það má ekki nota tjáningu til að brjóta á þeim réttindum. En það er ekki nálgunin sem við förum þegar kemur að hatursáróðursákvæðinu á Íslandi og ekki heldur meiðyrðaákvæðinu. Þá erum við allt í einu farin út í eitthvert mat á einhverri línu sem enginn hefur nokkurn tímann getað skilgreint hvar er, allra síst Hæstiréttur ef marka má nýlega dóma. Þá er alltaf spurningin hvaða tilfinningar það veki, hvort einhver sé nógu móðgaður, hvort einhver sé nógu sár, hvort einhver geti bara tekið hlutina nógu mikið nærri sér til að annar sé brotlegur við hegningarlög. Sú staða, virðulegi forseti, er vond. Eins og ég segi er ég hlynntur hatursorðræðuákvæði en mér finnst það þurfa að vera skýrara. Það þarf að byggja á einhverjum réttindum sem er verið að verja hjá öðrum, ekki bara tilfinningum sem fólk getur að einhverju leyti sjálft ráðið hversu viðkvæmar séu.
Til að ljúka þessari gagnrýni um það ákvæði legg ég til að í b-lið 11. gr. verði fangelsisrefsingarviðmiðið hækkað úr tveimur árum í eitthvað meira, þrjú ár væri strax skárra, þrjú eða fjögur ár, eitthvað því um líkt. Það myndi taka út þær áhyggjur sem ég hef af því að þetta ákvæði gefi yfirvöldum óhóflegt vald til að taka niður landslén á grundvelli þessa ákvæðis. (Forseti hringir.)
Nú hef ég því miður ekki meiri tíma til að ræða þetta að svo stöddu, virðulegi forseti, en mun taka aftur til máls við 2. umr. ef ég get á þeim tíma.