afnám 70 ára aldurstakmörkunar í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Hæstv. forseti. Ég er í sjálfu sér í hjarta mínu sammála þessu máli. Ég skil reyndar ekki framkomu þess og ég skil ekki formið á því. Ef flutningsmenn hefðu vilja til þess að taka ákvæði úr starfsmannalögum sem takmarkar störf opinberra starfsmanna við 70 ára aldur væri réttara að leggja fram lagafrumvarp þess efnis. Þetta skil ég ekki í fyrsta lagi.
Í öðru lagi fjallar frumvarp Miðflokksins, sem var vísað til ríkisstjórnar á haustþingi, um að ríkisstarfsmenn geti unnið til 73 ára ef þeir kjósa svo. Því var vísað til ríkisstjórnar gegn því loforði að fjármálaráðherra kæmi á haustþingi 2020 með frumvarp þess efnis, þ.e. að ríkisstarfsmenn geti, ef þeir svo kjósa og treysta sér til, unnið til 73 ára aldurs. Nú veit ég ekki hvort það er af vantrausti flutningsmanns við félaga sinn fjármálaráðherra að hún leggur þessa tillögu fram til að hnykkja á því frumvarpi sem þegar er í höndum hæstv. ráðherra, ég skil ekki alveg hvort það er. Þess vegna velti ég fyrir mér þessu formi og framkomu málsins. Ég ætla ekki að verða til þess að leggja stein í götu þess en ég segi aftur: Málið er þegar í farvegi, þingmál Miðflokksins er búið að fara sína leið, reyndar tvö þing í röð, í gegnum Alþingi. Í fyrra skiptið dagaði það uppi í nefnd en í seinna skiptið var því vísað til ríkisstjórnar.
Ég er auðvitað í hjarta mínu algerlega sammála markmiðunum. Eins og kom fram í ágætri ræðu hv. þm. Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur er það þannig að í kolli þeirra sem eru sjötugir og hafa lengi unnið hjá ríkinu, t.d. í sérfræðistörfum, er ómetanlegur fjársjóður þekkingar sem er í raun verið að henda, gera lítið úr, með því að reka þetta fólk úr starfi sjötugt að aldri.
Það er annað líka sem kom fram, sem er alveg hárrétt, í ræðu hv. þingmanns en það er að þeir sem hafa unnið hjá ríkinu langan dag og hætta sjötugir eru oft gerðir að verktökum hjá ríkinu. En það er annað sem fylgir því. Núverandi ríkisstjórn hefur ekki treyst sér til þess að taka af þær takmarkanir sem þetta fólk býr við um tekjur. Við Miðflokksmenn höfum lagt til líklega þrjú þing í röð að atvinnutekjur skerði ekki lífeyristekjur. Eins og þetta er í dag er ekki nóg með að þetta fólk verði verktakar hjá ríkinu, það má ekki vinna sér inn nema 100.000 kall án þess að það fari að skerða bætur þess. Þetta, herra forseti, er ekki hvetjandi, alls ekki. Og ef hugur flutningsmanna fylgdi virkilega máli þá hefðu þeir náttúrlega í fyrsta lagi stutt það frumvarp sem ég ræddi hér áðan sem Miðflokkurinn lagði til. Það voru tvær atrennur gerðar að því að það yrði að lögum, þessar tvær greinar, þ.e. að 73 árin yrðu lögfest og lögin tækju þegar gildi. Það var hins vegar í huga okkar varnarsigur að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar í því trausti að það kæmi fullbúið hér á haustþingi og þá væntanlega með breiðari skírskotun en frumvarpið sem við lögðum fram var með.
Það er rétt líka að rifja það upp einu sinni enn að það eru þó nokkur ár síðan löggjafinn ákvað að lífeyristökualdur á Íslandi væri sveigjanlegur frá 65 ára upp í áttrætt. En gagnvart ríkisstarfsmönnum er hann ekkert sveigjanlegur. Sjötugt og málinu er lokið. Í raun er löngu tímabært að breyta þessu. En ég segi aftur, ég skil ekki tilurð málsins. Ég hefði talið eðlilegra að henda þessu í lagafrumvarp og taka takmörkunina af í einu vetfangi. En það er reyndar það sem við Miðflokksmenn lögðum til og er núna í höndum ríkisstjórnarinnar.
Það er reyndar eitt sem kemur kannski ekki skýrt fram í þessu máli hér, þ.e. hvort flutningsmenn hugsi sér það að öll aldursmörk verði burtu tekin. Verði það gert þá kallar það á aðeins meiri umsýslu og/eða fleiri úrræði. Ef við gefum þetta alveg laust, segjum bara að menn geti unnið hjá ríkinu til níræðs ef þeim dettur í hug, hljóta menn að gera einhvern tímann á þeirri vegferð frá sjötugu upp í nírætt ráð fyrir því að einhvers konar hæfismat fari fram. Í dag, herra forseti, er það þannig að um sjötugt detta þau ökuréttindi sem menn hafa úr gildi og menn þurfa að endurnýja þau hraðar eftir sjötugt en áður var. Ef ég man rétt fyrst á fimm ára fresti og síðan ársfresti þegar lengra líður. Ef þetta er það sem vakir fyrir mönnum þá hljóta menn að þurfa að gera það. Það kemur ekki fram, ég hef ekki orðið var við það í þessari greinargerð. Menn hljóta að gera einhverjar ráðstafanir til þess að það verði eitthvað sem heitir hæfismat þegar fólk er komið á aldur, vel við aldur, til að vera vissir um að það ágæta fólk sé í færum til þess að starfa eins og það hefur gert áður. Þess vegna var t.d. frumvarp Miðflokksmanna miðað við 73 ár. Það var ekki alveg út í loftið því að samkvæmt rannsóknum er þátttaka í störfum eða atvinnuþátttaka mjög sterk fram að 73 ára aldri en þá tekur hún mjög skarpa dýfu.
Það kann að vera, t.d. núna upp á síðkastið, að þetta sé að hluta til vegna þess sem ég sagði áðan, af því að ríkisstjórnin hefur heykst á því að breyta 100.000 kr. sem svokölluðu frítekjumarki sem ég vil leyfa mér að halda fram, herra forseti, að sé algjört bull. Ef tillaga okkar Miðflokksmanna hefði verið afgreidd, þ.e. að atvinnutekjur rýri ekki lífeyristekjur, þá tapar enginn á því, herra forseti, ekki nokkur maður, ekki ríkið heldur, vegna þess að af þessum tekjum myndi fólk að sjálfsögðu greiða skatt. Mér er ekki örgrannt um, þó að ég hafi svo sem ekkert alveg naglfast í hendi og þetta á náttúrlega ekki við um ríkið, að með því að mönnum sé gert að geta ekki haft meiri tekjur en 100.000 kr. án þess að verða fyrir skerðingum sé verið að neyða eldri borgara þessa lands út í skattsvik á efri árum. Sé sú hugdetta mín rétt, þetta er eiginlega meira en ágiskuð ályktun heldur er þetta eitthvað sem maður hefur heyrt og séð og orðið var við, þá er það meira en kaldhæðnislegt að neyða fólk út í skattsvik, fólk sem skilað hefur góðu starfi í þjóðfélaginu alla sína tíð og er á lokametrunum á vinnumarkaðnum, það er mjög ömurlegt.
Ég hefði talið að eins ágætt og þetta mál er og meinlaust þá væri betra ef það hefði verið skarpara. Ég hefði talið betra, ef það á að gilda um 70 ár plús, án hámarks, að eitthvað meira hefði verið um það. En þess utan finnst mér náttúrlega kauðskt að Alþingi álykti að ráðherra semji lög. Það er Alþingis að semja lög, herra forseti. Það er starfið okkar hér, viðfangsefni okkar er að semja lög og við þurfum ekkert að skora á einhverja ráðherra að semja lög, við gerum það bara sjálf ef við ætlum að gera það. Þess vegna skil ég ekki þessa krókaleið.
Að því sögðu er málið það meinlaust að það er engin ástæða til að standa í vegi fyrir því og ég geri ekki ráð fyrir að gera það. Ég vildi samt sem áður benda á þá augljósu ágalla sem eru á því áður en lengra er haldið.