afnám 70 ára aldurstakmörkunar í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum ræðuna. Þrátt fyrir að honum finnist þetta ósköp tilgangslaust mál sem er hér á ferðinni er ég honum alls ekki sammála. Ég tel, og það er ástæðan fyrir því að ég lagði ekki fram lagafrumvarp, mjög mikilvægt að það sé samtal við samtök opinberra starfsmanna. Mér finnst það ekki vera fyrsta skref Alþingis að setja lög um að afnema þetta án þess að gefa þeim samtökum færi á að koma með hugmyndir að útfærslu, m.a. á því sem þingmaður ræðir um, um aldursbilið, þ.e. að það sé afnumið og ekki sett neitt aldurshámark. Ég tel að með því að leggja tillöguna fram fáum við umsagnir, væntanlega m.a. frá þessum aðilum, sem ráðherrarnir tveir geta svo í framhaldinu unnið með verði vilji til þess. Kannski verður ekki vilji til þess. Kannski verður mikill vilji til þess, ég veit það ekki. Það fólk sem ég hef rætt við er mjög jákvætt en það þýðir ekki að niðurstaðan verði endilega í samræmi við það. Mér finnst upphaflegi og eini tilgangur þessa máls vera sá að draga það fólk að borðinu sem þetta á við, en það sé ekki sú forræðishyggja að taka bara af því völdin og segja: Við ætlum að afnema þetta, alveg sama hvað ykkur finnst.
Mér finnst mikilvægt að við virðum rétt samtaka, m.a. allra samtaka launþega, eins og þessara, samtaka opinberra starfsmanna. Ég held að það sé kostur og málinu til framgangs að gera það með þessum hætti, sem ráðherrar geta svo unnið með. Alþingi getur samið lög, ráðherrar semja líka lög og við ákveðum svo hvað við gerum við þau.