150. löggjafarþing — 71. fundur,  12. mars 2020.

mótun klasastefnu.

121. mál
[11:46]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég flyt hér nefndarálit með breytingartillögu frá atvinnuveganefnd um tillögu til þingsályktunar um mótun klasastefnu. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið fjölmarga gesti á sinn fund. Umsagnir bárust frá fimm aðilum.

Með tillögunni sem lögð hefur verið fram nokkrum sinnum áður er lagt til Alþingi feli ríkisstjórninni að skipa starfshóp sem fái það hlutverk að móta opinbera klasastefnu. Stefnan feli í sér fyrirkomulag um hvernig hið opinbera efli stoðkerfi atvinnulífsins á landsvísu í samvinnu við atvinnulífið, rannsókna- og menntastofnanir, sveitarfélögin og aðra hagsmunaaðila sem málið snertir.

Við umfjöllun nefndarinnar kom fram eindreginn stuðningur við málið. Bent var á að klösum hér á landi hafi farið fjölgandi og að fjölmörg fyrirtæki hafi verið sett á stofn í beinum tengslum við starfsemi þeirra. Mótun klasastefnu sé til þess fallin að efla nýsköpunarvirkni og samkeppnishæfni fyrirtækja hér á landi og auka samstarf þeirra við rannsóknastofnanir og háskóla. Þá gæti klasastefna betur mótað ramma um það hvernig rannsóknir og greining á klösum hér á landi fer fram og árangur þeirra metinn.

Nefndin tekur undir þessi sjónarmið og bendir á að önnur ríki Norðurlandanna, m.a. Danmörk og Noregur, hafi mótað sér opinbera stefnu um klasa með góðum árangri. Mikilvægt sé að horfa til þeirra fyrirmynda við mótun stefnunnar.

Þá bendir nefndin á að í nýsköpunarstefnu fyrir Ísland, Nýsköpunarlandið Ísland, sem ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kynnti haustið 2019 segir að nýsköpun sé lykillinn að úrlausn stærstu viðfangsefna komandi áratuga. Meðal þeirra markmiða sem fram koma í stefnunni er að stjórnvöld gæti þess að stuðningur sé markviss og að Ísland dragist ekki aftur úr öðrum svæðum. Við umfjöllun um málið á 149. löggjafarþingi var bent á að mögulega væri rétt að klasastefna yrði hluti af nýsköpunarstefnu fyrir landið. Þótt nýsköpunarstefna liggi nú fyrir og að þar sé ekki fjallað sérstaklega um klasa telur nefndin ljóst að þeir séu mikilvægt verkfæri til þess að ná þeim markmiðum sem þar er stefnt að. Því telur nefndin brýnt að við mótun klasastefnu verði höfð hliðsjón af nýsköpunarstefnu.

Að lokum bendir nefndin á að lagt er til að ríkisstjórnin skili skýrslu til Alþingis með niðurstöðum starfshópsins í lok maí 2020. Í ljósi þess að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið fer með málefni atvinnuþróunar, tæknirannsókna og nýsköpunar er lögð til breyting þess efnis að ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra verði falið að skila Alþingi skýrslunni nokkru seinna. Þá leggur nefndin til að starfshópnum verði veittur rýmri frestur til að skila niðurstöðum sínum og leggur einnig til breytingu þess efnis.

Með vísan í framangreint leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt með þeirri breytingu að ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skili skýrslu til Alþingis með niðurstöðum starfshóps fyrir 1. febrúar 2021.

Undir nefndarálitið skrifa hv. þingmenn Lilja Rafney Magnúsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Ásmundur Friðriksson, Jón Þór Ólafsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Ólafur Ísleifsson og Sigurður Páll Jónsson. Rósa Björk Brynjólfsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.