150. löggjafarþing — 71. fundur,  12. mars 2020.

mótun klasastefnu.

121. mál
[11:50]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég tek undir þessa fínu tillögu sem er komin fram. 1. flutningsmaður er hv. þm. Willum Þór Þórsson og þetta mál var í atvinnuveganefnd á síðasta ári og núna er það komið inn í þingsal. Ég vona að það fái góðar viðtökur og verði afgreitt héðan því að þetta er brýnt og þarft mál og styður við þá nýsköpunarstefnu sem er nú í vinnslu til 2030 af hálfu ríkisstjórnarinnar. Við vitum að öll nýsköpun er grundvöllur framþróunar í landinu og það er mikilvægt að við byggjum á þeim mannauði og þekkingu sem við höfum og nýtum það vítt og breitt um landið að styrkja þá nýsköpun sem fyrir er og líka að koma að henni með öðrum hætti en verið hefur.

Er þá horft til mótunar klasastefnu eins og þessi þingsályktunartillaga gengur út á, að hér sé mótuð klasastefna og starfshópur skipaður til þess. Við þekkjum að þó nokkrir klasar eru í ýmsum atvinnugreinum sem hafa gert góða hluti og verið mjög uppbyggjandi og styðjandi við þær greinar sem hafa verið innan þeirra klasa. Ég tel mikilvægt að horft sé til þess hvernig við nýtum best fjármagnið sem við leggjum til nýsköpunar, að það nýtist í atvinnuuppbyggingu og byggðaþróun og styðji við þá frumkvöðla sem við höfum á Íslandi. Við eigum sem betur fer mikið af góðu hugviti og verkþekkingu hjá fólki vítt og breitt um landið sem mikilvægt er að nýta til framþróunar fyrir komandi kynslóðir.

Þetta er hið besta mál og ég vona að það hljóti sem fyrst jákvæða afgreiðslu á Alþingi.