150. löggjafarþing — 71. fundur,  12. mars 2020.

mótun klasastefnu.

121. mál
[11:52]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Við ræðum hér við síðari umr. mótun klasastefnu. Þetta mál var fyrst lagt fram á 144. löggjafarþingi og kemur hér fram í nefndaráliti atvinnuveganefndar. Eftir því sem árin hafa liðið hafa fleiri klasar í atvinnulífinu sprottið upp þar sem fyrirtæki í sömu atvinnugrein og þvert á greinar sjá kosti samvinnunnar, auk samstarfs við hið opinbera, ríki og sveitarfélög, og þekkingar-, mennta- og rannsóknastofnanir.

Ég hef fundið það eftir því sem tíminn líður og málið hefur oftar komið fyrir þingið að það er aukinn skilningur og breiðari stuðningur við það eins og meðflutningsmenn tillögunnar ásamt mér bera vitni um. Málið á stuðning þingmanna allra flokka á Alþingi. Ég er mjög þakklátur fyrir þann stuðning og jákvæðni fyrir framgangi málsins. Ég horfi ekki síður til þessa breiða stuðnings og er þá vongóður um framhaldið og framgang málsins á endanum. Ég vona að við sjáum, þegar starfshópurinn hefur lokið störfum, mótun stefnu fyrir stuðningskerfi klasasamstarfs, þau stoðkerfi sem eru svo mikilvæg í slíku starfi, og stefnu sem lifir ríkisstjórnina eins og góð stefnumótun gerir og setur atvinnugreinar, rannsóknir, nýsköpun og þróun, klasasamstarfið, í forgrunn og tryggir enn frekar farsælt atvinnulíf um land allt þar sem okkur tekst að ná þeim markmiðum sem eru sett fram og koma fram í greinargerð með málinu.

Ég vil aðeins koma inn á a-lið en í umsögn Álklasans kemur fram að þar mætti bæta við orðinu „nýsköpun“, ekki einvörðungu tala um atvinnuuppbyggingu og byggðaþróun eins og þar stendur. Ég get tekið undir það og tel að starfshópurinn geti tekið tillit til þess í vinnu sinni. Mér finnst einboðið að styðja þá breytingartillögu sem hv. atvinnuveganefnd leggur hér fram um skil á skýrslu til Alþingis 1. febrúar 2021, að starfshópurinn hafi þann tíma sem til þarf og að málið fari til hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra eins og lagt er til.

Virðulegi forseti. Það er líka mikilvægt, sem nefndin dregur hér fram, að horfa til þeirra þjóða sem hafa náð góðum árangri og hafa góða sögu að segja. Noregur og Danmörk eru hér réttilega nefnd til sögunnar en fjöldamörg önnur ríki hafa mjög góða reynslu af slíku klasastarfi. Ég get nefnt Kanada, Nýja-Sjáland, Frakkland og fjölmörg ríki í Evrópusambandinu. Við þingmenn og hv. atvinnuveganefnd höfðum tækifæri til að hitta sérfræðing á þessu sviði og ráðgjafa, Ifor Williams, sem fór ágætlega og skemmtilega yfir það með okkur hvernig þetta hefur vaxið og dafnað frá því um 1990 þegar slíkir klasar fóru að vinna.

Ég vil einnig nefna að umsagnir hafa allar verið mjög jákvæðar um málið. Það hefði verið freistandi að vísa í fjölmargar jákvæðar og góðar umsagnir til stuðnings málinu en ég ætla að láta það hjá líða þar sem það kemur ágætlega fram í nefndaráliti atvinnuveganefndar. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. atvinnuveganefnd mjög góða vinnu og kjarngott nefndarálit. Þá vil ég þakka öllum umsagnaraðilum í gegnum tíðina fyrir að gefa verkefninu vigt og öllum meðflutningsmönnum stuðning við tillöguna. Ég er sannfærður um að þetta muni styrkja öflugt klasastarf í landinu, efla þar með nýsköpun og skila miklum ávinningi þegar fram í sækir.