mótun klasastefnu.
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mikið. Mér fannst bara mikilvægt að koma hingað upp og fagna því að við séum komin í síðari umr. í þessu ágæta máli. Mér finnst mjög mikilvægt að atvinnuveganefnd hafi náð þessari góðu samstöðu um að afgreiða málið. Við höfum séð það í klasastarfi á Íslandi hve mikilvægt þetta er, við höfum mjög skemmtileg dæmi eins og Íslenska ferðaklasann, Íslenska sjávarklasann og Álklasann og fleiri klasa sem hafa skilað gríðarlega mikilvægri vinnu. Á þeim tímum sem við lifum núna held ég að það hafi sjaldan verið jafn mikilvægt að við vinnum saman og nýtum samstöðumáttinn til að byggja upp og skapa ný tækifæri. Ég held að það sé svolítið viðeigandi að við ljúkum þessu máli hér í dag og vildi bara koma hingað upp og fagna því. Ég þakka að sjálfsögðu hv. flutningsmanni Willum Þór Þórssyni fyrir að hafa haft frumkvæði að þessu máli og fyrir að hafa ekki gefist upp þótt það hafi ekki gengið á síðasta þingi.
Ég fagna því að við séum núna að klára málið.