150. löggjafarþing — 73. fundur, 13. mars 2020.
breyting á starfsáætlun.
Á fundi sínum í gær fjallaði forsætisnefnd um bréf sem forseta barst frá fjármála- og efnahagsráðherra varðandi frestun á framlagningu fjármálaáætlunar vegna gjörbreyttra efnahagslegra aðstæðna.
Því liggur nú fyrir sú breyting á starfsáætlun að fjármálaáætlun verður ekki á dagskrá þingsins fyrr en um miðjan maí. Af sjálfu leiðir að starfsáætlun og fundahald í þinginu kann að taka frekari breytingum á næstu dögum og vikum og verður upplýst um það jafnóðum og mál skýrast.