150. löggjafarþing — 76. fundur,  17. mars 2020.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:31]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá eftirtöldum ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum, frá utanríkisráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 124, um athugasemdir ráðuneytis við lögfræðilegar álitsgerðir; og á þskj. 113, um skuldbindingu íslenska ríkisins um að réttilega innleiddar EES-gerðir hafi forgangsáhrif í íslenskum rétti, báðar frá Ólafi Ísleifssyni. Loks er bréf frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 853, um skaðabótakröfur vegna úthlutunar á heimildum til veiða á makríl, frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.