150. löggjafarþing — 76. fundur,  17. mars 2020.

aðgerðir til aðstoðar heimilunum.

[13:50]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Það er að sjálfsögðu rétt hjá hv. þingmanni að við munum sjá verulega mikil áhrif á efnahagslífið og okkar hlutverk er og okkar aðgerðir miða að því að lágmarka þau áhrif eins og hægt er. Hér er nefndur 100 milljarða halli. Ég lét þess getið í viðtali fyrr í dag að það stefndi í, miðað við það sem við vitum í dag, alveg örugglega að lágmarki 100 milljarða halla og vel rúmlega það. Ég ætla ekkert að spá því í dag hvort það verði 200 milljarða halli. Það vitum við ekki. Nú eru nýjustu aðgerðir allar í þá átt að þrengja enn frekar að allri efnahagsstarfsemi, t.d. ferðaþjónustu sem mun hafa gríðarlega mikil áhrif hér á Íslandi.

Það er rætt um það hvað við ætlum að gera til að verja fólkið, ekki bara fyrirtækin. Ég ætla þá að vera talsmaður þess að þetta fari saman. Þegar við styðjum fyrirtæki í því að halda fólki á launaskrá erum við að hjálpa fólkinu. Þegar við tökum hluta af launagreiðslunum á ríkissjóð erum við að hjálpa fyrirtækjunum, já, að halda starfseminni gangandi en við erum að létta undir með fyrirtækjunum þannig að fólk missi ekki vinnuna. Þetta er náskylt. Á dagskrá þingsins í dag er frumvarp um þetta efni sem ég tel að fara þurfi vel ofan í saumana á og ég veit að ráðherrann hefur boðað gott samstarf við þingið um útfærslu sem tryggir að við náum markmiðum okkar.

Hvar eru stóru aðgerðirnar? er spurt. Hvaða aðgerðir er verið að vísa sérstaklega til? Væntanlega er verið að vísa til aðgerða seðlabanka og ríkisstjórnar sem hafa verið að tryggja fjármagn og greiðslufresti á opinberum gjöldum. Þetta erum við að gera eins og stóru þjóðirnar eru að gera. Það er mögulega verið að vísa til þess að við eigum að vera að lána meira út af peningum, jafnvel með ríkisábyrgð, til fyrirtækja. Það eru stóru aðgerðirnar í Noregi, Danmörku og víðar. Við munum skoða það. En það er sannarlega ekki samkvæmt skilgreiningu hv. þingmanns aðgerð sem er sérstaklega hugsuð fyrir fólk. Ég ætla hins vegar að gerast talsmaður þess að við munum ná til margra einstaklinga með því að (Forseti hringir.) byggja brú yfir þetta tímabil sem er að verða. Við verðum einfaldlega að hafa trú á því að síðan taki við bjartari tímar.