150. löggjafarþing — 76. fundur,  17. mars 2020.

atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa.

664. mál
[14:36]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar vangaveltur og fyrirspurnir. Ég vil segja um 80% sem sett eru fram í frumvarpinu, með leyfi forseta:

„Laun frá vinnuveitanda og greiðslur atvinnuleysisbóta samanlagt geta þó aldrei numið hærri fjárhæð en 80% af meðaltali heildarlauna launamanns.“

Spurt er hvers vegna ákvæðið sé svona. Það fór m.a. þarna inn vegna þess að menn horfðu til þeirrar löggjafar sem sett var á sínum tíma í hruninu, í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur, við fordæmalausar aðstæður þá. Þá var horft til þess að talan væri 70% þannig að það er ekki verið að fara inn með jafn strangar hugmyndir hvað þetta snertir. Hins vegar er alveg ljóst að þetta er eitt af þeim ákvæðum sem menn smíðuðu á síðustu klukkutímunum þegar þetta mál var að verða til. Ég bendi á að það liðu 30 klukkutímar frá því að tekin var ákvörðun um að klára málið þangað til búið var að afgreiða það í ríkisstjórn og þingflokkum. Þá voru menn að velta þessu ákvæði fyrir sér. Ég hef sagt að þetta sé eitt af því sem við þurfum að skoða hvernig við lokum. Ástæðan fyrir því að þetta fer þarna inn er sú að menn voru að tala um 70% eftir efnahagshrunið. Þarna þarf að huga sérstaklega að tekjulægsta hópnum og það eru breytingar sem ég hvet nefndina til að skoða. Við erum líka að skoða málið og reikna út breytingar.

Varðandi það þegar einstaklingar eru starfandi hjá fleiri en einum og fleiri en tveimur aðilum er það einfaldlega unnið með þeim hætti að viðkomandi einstaklingur hefur alveg sömu réttindi með þessu frumvarpi þó að vinnuveitendurnir séu tveir. Það fer einfaldlega í vinnslu hjá Vinnumálastofnun sem er framkvæmdaraðili þessara laga. Það kann að vera aðeins meiri handavinna í kringum það en réttindin eru engu að síður þau sömu (Forseti hringir.) þó um tvo vinnuveitendur sé að ræða.