atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa.
Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt ef satt reynist að hægt sé að leggja saman tvær 50% vinnur og skerða þær báðar um 20% og halda þar með 60% starfshlutfalli en það er til að æra óstöðugan að reyna að finna út úr þessu sjálfur. Ég vil byrja á að biðla til hæstv. ráðherra um að vera mjög duglegur að miðla upplýsingum þegar þetta mál er komið í gegnum þingið, hvernig sem það svo endar, og halda sig ekki einvörðungu við íslensku heldur hafa líka tilkynningar á a.m.k. ensku og pólsku um hvernig réttindum launafólks sé háttað. Ég bið einstaklega vel um það vegna þess að það skiptir gríðarlega miklu máli. Margir sem reka veitingastaði og skemmtistaði eru ekki íslenskumælandi. Þeir þarfnast þess að fá upplýsingar á tungumáli sem þeir skilja um hvaða réttindi þeir geta veitt þeim einstaklingum sem eru í vinnu hjá þeim. Það er hægt að leggja þetta saman. Mér finnst að það mætti koma skýrt fram í a.m.k. nefndaráliti nefndarinnar en mér finnst eitthvað vanta upp á frumvarpstextann, að það sé ljóst af lestri hans að þetta eigi við um hlutavinnustarfsfólk. Ég hugsa t.d. um leikskólakennarann sem er svo í skúringum í hlutavinnu sem gerir akkúrat þann gæfumun að hægt sé að borga leiguna.
Hæstv. ráðherra minnist réttilega á að þetta frumvarp ætti sér fyrirmynd. Ég vil í því samhengi minna hæstv. ráðherra á að ýmislegt hefur breyst á þeim tíu árum sem liðin eru frá því að það frumvarp var lagt fram og þá voru ákveðnar aðstæður uppi. Leiguverð hefur hækkað gífurlega í millitíðinni og það er miklu algengara að einstaklingar séu í mörgum hlutastörfum frekar en endilega bara í einu aðalstarfi. Þess vegna velti ég líka fyrir mér síðasta skilyrðinu sem var einmitt ekki að finna í fyrri lagasetningu og það varðar 20% hlutfallið, að það verði að lækka allt vinnuhlutfall hjá viðkomandi vinnuveitanda um a.m.k. 20% til að þessi vernd (Forseti hringir.) eða aðstoð taki gildi. Hvernig stendur á því?