150. löggjafarþing — 76. fundur,  17. mars 2020.

atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa.

664. mál
[14:43]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við erum að fjalla um frumvarp um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um Ábyrgðasjóð launa, minnkað starfshlutfall. Ég hef áhyggjur af þeim sem eru í hlutastörfum, eru nú þegar í 50–60% starfi eins og öryrkjar og fleiri. Hvernig á að bregðast við því ef á að minnka starfshlutfall þeirra um helming? Eins og hæstv. fjármálaráðherra kom inn á áðan og var að bera okkur saman við Norðurlöndin, þar væri talað um 50% af veltu fyrirtækja en hvað ætti að gera ef hlutfallið væri 49%. Ég segi: Hvað ætlum við að gera við þá sem voru kannski í 60% og fara niður í 45%? Detta þeir út? Síðan er annað sem ég vil spyrja ráðherra um og væri gaman að fá svar við: Gildir um þessa lækkun starfshlutfalls um 20% skerðingu og 80% af launum, gildir það líka um opinbera starfsmenn? Fá þeir bara 80% af sínum launum?

Annað sem kemur alveg skýrt fram er að þessi skerðing, að fá 80% af launum, er auðvitað rosaleg slagsíða fyrir þá sem eru á lægstu launum. Ég segi fyrir mitt leyti að þá erum við komin langt undir fátæktarmörk. Við erum að tala um það. Af hverju í ósköpunum er ekki látið vera að skerða fyrr en við komum kannski yfir miðgildi launa, miða við eitthvað þannig, þannig að ekki sé verið að skerða þá sem eru langverst settir í þjóðfélaginu?