atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa.
Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanni fyrir þessar fyrirspurnir, þær voru nokkrar. Ef viðkomandi er í hlutastarfi, t.d. í 60% starfi, þá er það þannig, eins og þetta frumvarp er lagt fram, laganna texti er þannig ef hlutfallið lækkar um 20%, að það eru 20% af þessum 60%. Það er unnið út frá því, það er ramminn sem unnið er með.
Varðandi opinbera starfsmenn þá á þetta við um vinnumarkaðinn í heild. Ef viðkomandi er settur niður í hlutastarf þá gildir það almennt. En opinberi geirinn er yfirleitt á eftir vegna þess að þegar samdráttur verður á almenna markaðnum dragast tekjur ríkissjóðs saman. Þá er oft farið í niðurskurðarkröfu hjá hinu opinbera. Við höfum ekki haft heimildir fyrir því að það sé mikið um uppsagnir í opinbera geiranum, alla vega ekki enn sem komið er. Þetta er fyrst og fremst almenni vinnumarkaðurinn og ferðaþjónustan og þau fyrirtæki sem með einum eða öðrum hætti þjónusta ferðaþjónustan og auðvitað teygir það sig síðan inn í samfélagið allt.
Varðandi 80% þá var það hlutfall sett inn og er m.a. gert vegna þess að forsendur voru fyrir því, þetta var með þessum hætti í fyrri frumvörpum. Þetta er líka eitt af því sem ég hef talað um að við þurfum að skoða frekar og erum að láta reikna núna út hvernig við sæjum það fyrir okkur og hver kostnaðurinn yrði, hversu mikið fjármagn þyrfti inn í kerfið til að bregðast við því o.s.frv. Rétt eins og við vildum að þessi aðgerð kæmi inn á föstudaginn þannig að allir vissu að hún væri að koma þá viljum við líka að hún sé sem víðtækust þannig að sem flestir geti nýtt hana og við séum að forðast uppsagnir (Forseti hringir.) vegna þess að það væri ekki gott fyrir hinn vinnandi mann heldur.