150. löggjafarþing — 76. fundur,  17. mars 2020.

tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví.

667. mál
[16:22]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Þetta eru óvenjulegir tímar, þingmál koma hérna inn og hafa ekki farið í gegnum samráðsferli. Það er verið að vinna samráð bæði í meðförum og til hliðar við alla vinnu. Nú hefur hv. velferðarnefnd þjófstartað með vinnu sinni við þetta mál líkt og það mál sem var verið að ræða hér áðan. Þetta mál er ekki komið til hv. velferðarnefndar en velferðarnefnd er engu að síður farin að taka inn gesti út af því. Það virðist vera alveg skýrt hjá þeim fulltrúum sem komu fyrir nefndina, þ.e. Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins, að þau telja nauðsynlegt að grípa einhvern veginn foreldra þeirra skólabarna sem nú búa við skerta skólagöngu. Í einhverjum hverfum er reynt að láta þau mæta annan hvern dag, hluta úr degi o.s.frv. Auðvitað geta sumir krakkar auðveldlega verið einir heima en yngri börnin eiga erfiðara með það og þessir aðilar sendu tillögu til nefndarinnar um breytingu á þessu, um að jafnframt þurfi að grípa þá sem núna búa við þetta samkomubann sem voru tilmæli frá sóttvarnalækni.

Ég kom aðeins inn á þetta í andsvari við hæstv. ráðherra en við náðum ekki alveg að klára þetta. Það kom fram varðandi samkomubannið og það skerta skólastarf sem væri uppi núna að þetta frumvarp ætti ekki við það. Við erum með tilvik eins og við sjáum í dag frá Háteigsskóla þar sem heill skóli virðist vera kominn í sóttkví og þá veltir maður fyrir sér hvort einhverjar aðrar reglur gildi með börnin sem þar eru í sóttkví en barn sem er einstakt í sóttkví. Þurfum við einhvern veginn að reyna að vinna þetta eða erum við með þessu að bæta inn foreldrum barna sem sæta sóttkví? Erum við þar með búin að opna algjörlega á að nánast allt samfélagið falli undir þetta? Hvar ætlum við að draga mörkin?

Ég átta mig á að það er óskaplega erfitt að reyna að bregðast við. Það er mjög erfitt fyrir hæstv. ráðherra að reyna að skapa svona frumvarp þar sem við stöndum hér í pontu en engu að síður er ponta Alþingis sá staður þar sem allt er fært til bókar. Þess vegna þarf maður að orða hér þær áhyggjuraddir sem heyrast og ekki síður áhyggjuraddir þeirra foreldra sem eiga börn sem eru með einhvers konar skerta getu. Við erum að tala um börn með fötlun sem þurfa vegna samkomubanns núna að fá umönnun utan skólakerfisins, þ.e. heima hjá sér, vegna þess að búið er að setja skóla í sóttkví eða vegna samkomubanns. Samkomubannið kemur auðvitað að tilstuðlan sóttvarnalæknis þó að það sé hæstv. heilbrigðisráðherra sem lýsir yfir samkomubanni.

Þetta eru þau verkefni sem bíða hv. velferðarnefndar á næstu sólarhringum. Ég vildi bara koma hingað upp til að hafa orð á þessu. Ég ætlast ekki til þess að hæstv. ráðherra svari þessu hér og nú. Auðvitað verður haldið áfram að vinna þetta og ráðuneytið og hæstv. ráðherra munu koma aftur fyrir nefndina á morgun til að fara yfir málið. Við þurfum einhvern veginn að leita leiða til að grípa þessar fjölskyldur og þessi börn, sérstaklega þau börn sem eru í hvað viðkvæmastri stöðu.