150. löggjafarþing — 77. fundur,  17. mars 2020.

sveitarstjórnarlög.

648. mál
[16:46]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Mjög góðar breytingartillögur voru gerðar við málið milli umræðna. Það sem ég geri helst athugasemdir við í meðferð nefndarinnar eftir að breytingartillagan kom fram er að X. kafli sveitarstjórnarlaga, samráð við íbúa, sé hluti af undanþágunum. Þarna er sett fram á mjög skýran hátt að stjórnvaldsfyrirmæli eru sett á grundvelli ákvæða þar og samþykktir sveitarfélags við stjórn sveitarfélags til að tryggja að sveitarstjórn sé starfhæf við neyðarástand og til að auðvelda ákvarðanatöku. Þetta er enn þá víðtæk heimild til að víkja frá sveitarstjórnarlögum en hún er miklu afmarkaðri en hún var til að byrja með, er með tímatakmörkunum og á þeim grundvelli get ég mjög vel sætt mig við þessa niðurstöðu. Mér finnst hún mjög góð og málefnaleg hvað það varðar en beini því samt til ráðherra og sveitarstjórna að fara mjög varlega með þessar valdheimildir. Að öðru leyti er þetta málefnaleg niðurstaða.