150. löggjafarþing — 77. fundur,  17. mars 2020.

sveitarstjórnarlög.

648. mál
[16:49]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Það frumvarp sem var lagt fram af umhverfis- og samgöngunefnd og við erum að fara að afgreiða núna var unnið í flýti. Þegar menn vinna í flýti vilja þeir oft stytta sér leið sem þýddi að tillagan sem var lögð fram hefði haft víðtæk áhrif, ráðherra fengi ótímabundið vald til að heimila sveitarstjórnum að víkja frá ótilgreindum lagaákvæðum sveitarstjórnarlaga við óskilgreint neyðarástand. Sem betur fer og með þökkum brást umhverfis- og samgöngunefnd við þessum ábendingum og setti inn að þetta vald væri ekki ótímabundið. Það ákvæði fellur úr gildi í lok þessa árs. Þetta er ekki lengur ótilgreint lagaákvæði sveitarstjórnarlaga. Það eru tilgreindir kaflar sem það má eiga við.

Það eina sem stendur út af er að enn er ótilgreint neyðarástand sem skiptir minna máli þar sem búið er að festa þetta afmarkað, bæði í tíma og að umfangi. Neyðarástandið gæti verið efnahagsmál o.s.frv. en eins og ég segi skiptir það minna máli þannig að þetta er málefnaleg nálgun og gott að nefndin gat unnið að þessu faglega.