150. löggjafarþing — 78. fundur,  17. mars 2020.

um fundarstjórn.

[18:42]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Það kemur mér nokkuð á óvart að málið sé komið til umræðu í þingsal því að samkvæmt þeim upplýsingum sem mér hafa borist er enn beðið eftir gestum sem velferðarnefnd bað um að fá að hlýða á í tengslum við þau frumvörp sem rædd voru hér fyrr í dag. Í ljósi þeirrar stöðu og þess að verið er að leggja málin fram og reyna að keyra þau hratt í gegnum störfin og meðferð þingsins, þó að ekki sé kastað til hendinni hvað gæði málanna varðar, vekur mikla furðu að velferðarnefndarfundi sé slitið til að ræða hér mál sem blasir við að ekkert liggur á að ræða.

Væri ekki skynsamlegt að leyfa velferðarnefnd að fjalla áfram um þau mikilvægu mál sem eru í gangi innan nefndarinnar og gestir bíða beinlínis eftir að koma fyrir nefndina þótt á fjarfundi sé?