150. löggjafarþing — 78. fundur,  17. mars 2020.

um fundarstjórn.

[18:43]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hefur frestað fundum í samráði við formann velferðarnefndar. Þegar fundi var frestað hér kl. 18.15 varð niðurstaðan sú að það myndi nægja að fresta fundinum til kl. 18.40 og að ekki yrðu gerðar athugasemdir við að hann myndi hefjast þá á umræðu um málið. Þessar upplýsingar fengum við, ég og skrifstofan, beint frá velferðarnefnd.

Varðandi málið sem hér er á dagskrá kynnti forseti sér það sérstaklega í dag hvort það mætti ekki teljast fullrannsakað. Upplýst var að málið sem gekk aftur til nefndar milli 2. og 3. umr. hefði verið tekið ágreiningslaust út úr nefndinni og að fulltrúi einskis þingflokks hefði andmælt því að það væri afgreitt aftur til 3. og síðustu umr.

Forseti kannast ekki við að neinir meinbugir séu á því að þetta mál gangi nú til lokaafgreiðslu á þingi sem og 4. dagskrármálið. Bæði eru fullrannsökuð og komin til 3. umr. og það er í samræmi við hefðir að slík mál séu sett á dagskrá.

Forseti telur að sýndur hafi verið ágætissveigjanleiki við fundarstjórnina í ljósi þess sem hann hefur nú upplýst. Vilji hv. þingmenn hins vegar halda áfram að ræða það er þeim það frjálst.