150. löggjafarþing — 78. fundur,  17. mars 2020.

þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.

317. mál
[19:05]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Annars vegar er um að ræða óánægju, sem að sumu leyti er skiljanleg, með framkvæmd þjóðlendulaganna frá 1998. Á þeim 22 árum sem liðin eru frá þeim tíma hefur ýmislegt gerst og raunar ýmislegt breyst líka þannig að hin síðari ár hefur verið ívið meiri sátt um framkvæmdina en var kannski á fyrstu árunum. Ég hygg að þar hafi haft áhrif að bæði lærðu menn að einhverju leyti af reynslunni og tóku mark á gagnrýni sem fram kom, sérstaklega á fyrstu árunum eftir að þjóðlendulögin voru sett.

Frumvarpið sem við fjöllum um hér snýr hins vegar að tilteknum afmörkuðum breytingum á núgildandi lögum á þessu sviði. Þegar við tökum afstöðu til þessa frumvarps verðum við væntanlega að gera það út frá því hvað felst í frumvarpinu sem slíku. Þrátt fyrir að ég virði rétt hv. þingmanns til að fjalla almennt um þessi mál og lýsa almennri óánægju með framkvæmd þessara mála á síðustu tveimur áratugum þá skiptir meira máli varðandi framgang þessa máls að fjalla um þau tilteknu gagnrýnisatriði sem fram hafa komið varðandi frumvarpið og reyna að leiða þau til lykta. Reynt hefur verið að gera það á vettvangi hv. allsherjar- og menntamálanefndar og niðurstaðan hefur verið sú að ekki sé tilefni til verulegra breytinga á frumvarpinu af þeim sökum vegna þess að þarna er fyrst og fremst verið að fjalla um tilteknar málsmeðferðarreglur, ekki um eignarrétt tiltekinna hópa eða tiltekinna eigenda lands á ákveðnu landsvæði. Það eru aðrar réttarreglur sem skera úr um það. En ég held að þær málsmeðferðarreglur sem hér er verið að breyta séu til bóta frá því sem nú er.