þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.
Virðulegur forseti. Þetta var svo mikill þvættingur sem hér kom fram að ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja. Sem framsögumaður þessa máls sagði ég að málið yrði tekið aftur inn í nefnd í nefndinni, þ.e. áður en það var tekið út. Það lá alveg fyrir að við myndum vilja koma því í 2. umr. og síðan yrði málið tekið inn aftur. Við göngumst við því, það hefur aldrei leikið neinn vafi á því. Ég verð hins vegar að segja að fulltrúi Miðflokksins í nefndinni óskaði ekki eftir fleiri gestum og var hlynntur því að málið yrði tekið út. Ég skil því ekki þá umfjöllun að málið hafi ekki verið reifað með viðunandi hætti í nefndinni. Það er bara ósatt. Þau atriði sem hér hafa verið rakin, og komu m.a. fram í minnihlutaáliti Miðflokksins, voru tekin til umfjöllunar. Ekki þótti ástæða til að fá alla aðila aftur á fund nefndarinnar. Álit Samtaka eigenda sjávarjarða liggur t.d. klárt fyrir, það þurfti ekkert sérstaklega að fá þá aftur inn. Það var alveg kristaltært í okkar huga, þeirra viðhorf til þessa máls. Við fengum hins vegar fulltrúa fjármálaráðuneytisins á okkar fund, m.a. vegna þess sem kom fram í ræðu hjá hv. þm. Birgi Þórarinssyni hér í þingsal o.fl., þar sem rætt var um tekjumálin. Þau voru skýrð og liggur fyrir hvers vegna þau eru með þeim hætti sem þau eru. Það var farið mjög vel yfir allt annað sem hér hefur verið rætt. Varðandi það að einn umsagnaraðili sé minna virði en annar eins og hv. þingmaður og þingmenn Miðflokksins láta í ljós, að það sé almennt bara ekki gott fólk sem skipar óbyggðanefnd — maður getur alla vega leyft sér að skilja það þannig vegna þess að hér er sagt að þau hafi vald til að túlka þetta og hitt — þá liggur algerlega skýrt fyrir að það sem hér var velt upp í 2. umr., og fólki þótti ekki alveg nógu skýrt, var skýrt mjög vel, (Forseti hringir.) bæði í minnisblaði og í umfjöllun og orðaskiptum á fundi nefndarinnar. Ég get bara ekki tekið undir það, hv. þm. Bergþór Ólason, að málið hafi ekki verið vel unnið á milli umræðna.